Talmeinafræðingar – ráðgjöf
Bóka tíma
Til baka í fræðslu

Málþroskaröskun, DLD – fyrirlestur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla

Fyrirlesturinn er ætlaður starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla sem vill efla þekkingu sína á málþroskaröskun, DLD (Developmental Language Disorder) og áhrifum hennar á nám, samskipti og félagslega þátttöku barna og ungmenna.

Fjallað er um einkenni málþroskaröskunar, hvernig þau geta birst á ólíkan hátt eftir mismunandi aldri og þær áskoranir sem nemendur með DLD geta staðið frammi fyrir í skólastarfi. Sérstök áhersla er lögð á að auka skilning fagfólks á þörfum þessara nemenda og kynna hagnýtar leiðir til að styðja við málskilning, tjáningu, nám og samskipti.