Fyrirlestur um málþroska barna fyrir fagfólk
Fyrirlesturinn er ætlaður starfsfólki leik- og grunnskóla og öðru fagfólki sem vinnur með börnum og vill efla þekkingu sína á málþroska og málþroskavanda.
Fjallað er um helstu þætti málþroskans, einkenni málþroskaerfiðleika og hvernig þeir geta haft áhrif á nám, samskipti og félagslega þátttöku barna. Sérstök áhersla er lögð á hagnýtar leiðir til að styðja við málþroska barna í daglegu starfi.