Hrafnhildur Halldórsdóttir
Talmeinafræðingur
hrafnhildur@talradgjof.isRáðgjöf
- Málþroski 0–6 ára barna
- Málþroski 6–12 ára barna
- Málþroski unglinga og ungmenna
Fyrirlestrar og fræðsla
- Málþroski barna
- DLD (Developmental Language Disorder) fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla
Menntun og reynsla
Hrafnhildur útskrifaðist árið 2004 með MSc-gráðu í talmeinafræði frá Háskólanum í Gautaborg. Hrafnhildur hefur um 20 ára reynslu sem talmeinafræðingur og starfaði lengst af hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands en hefur starfað hjá Geðheilsumiðstöð barna frá árinu 2023.
Hrafnhildur hefur víðtæka reynslu af greiningum, þjálfun, ráðgjöf og fræðslu og hefur starfað með bæði börnum og fullorðnum. Sérþekking hennar nær meðal annars til málþroskavanda, framburðarfrávika, heyrnarskerðingar, skarðs í vör og/eða gómi og snemmtækrar íhlutunar ungra barna.
Hrafnhildur hefur jafnframt mikla reynslu af ráðgjöf til fagfólks og tók þátt í mótun þverfaglegs teymis fyrir börn fædd með skarð í samstarfi við Landspítalann.