Ráðgjöf vegna málþroska unglinga og ungmenna
Ráðgjöfin er ætluð foreldrum unglinga og ungmenna sem glíma við málþroskaerfiðleika eða vilja fá leiðbeiningar um hvernig hægt er að takast á við áskoranir tengdar málskilningi, tjáningu, námi og samskiptum.
Fyrir ráðgjafartímann eru fylltar út bakgrunnsupplýsingar og í kjölfarið veittar einstaklingsmiðaðar leiðbeiningar og hagnýtar hugmyndir sem miða að því að auðvelda daglegt líf, nám og samskipti.
Áhersla er lögð á að unglingurinn eða ungmennið sé sjálft virkur þátttakandi í ráðgjöfinni, fái tækifæri til að átta sig betur á eigin styrkleikum og áskorunum og læri hagnýtar aðferðir til að takast á við þær.
Ráðgjöfin felur ekki í sér formlegt málþroskamat eða greiningu.